
† Pétur okkar, þú ert farinn frá okkur á æðri stað.
Gleymi því aldrei þegar ég hitti hann fyrst í fermingarbúðum, ég man ég spurði Jón Einar hver þessi strákur væri eiginlega, og hvort að það væri ekki allt í lagi með hann, málið var bara að hann var svo óhugnalega hress og brosti svo rosalega mikið, að ég hafði aldrei séð annað eins :)
†Pétur er einhverstaðar á æðri stað núna, situr brosandi á skýjahnorða og horfir á okkur hin. Hann styður við bakið á okkur og gefur okkur styrk því að hann Pétur vill ekki hafa okkur sorgmædd. Hann var sá einn lífglaðasti persónuleiki sem ég hef nokkurn tíman fengið þann heiður á að kynnast. Pétur gerði alla í kringum sig glaða, það var nóg fyrir hann að brosa þessu breiða grallarabrosi sínu sem gat lýst upp allan heiminn.
†En núna er enginn Pétur á að fylla í kælirinn niðri Bónus eða í Hraðbúðinni eða bara hvergi =/ Ég man þegar ég sá hann sumarið 2005 .. að fylla á kæli niðrí Bónus, labbaði framhjá honum, svo eftir smá stund hringdi síminn minn, þá var það Pétur, að segja Hæ sandra, mannstu ekki eftir mér ? Pétri ? Ég var að fylla á kælirinn niðrí Bónus áðan þegar þú komst inn :) Þá gat ég ekki annað en brosað :)
†Pétur þú varst sko sannarlega ljós sem lýstir upp veröldina hjá okkur öllum. En ég veit að þú ert á góðum stað núna, englarnir hafa sko sannarlega fengið góðan liðsauka. Þú ert án nokkur efa fallegasti engillinn á himnum og með skærasta bauginn af þeim öllum ;*
En núna veit ég að það er engin friður í himnaríki :D Því öll gleðin og kátínan sem fylgdi Pétri var einstök ;*
Pétur situr þarna á skýji, og er að bjóða hinum englunum að fá sér í nefið :) ;*
† Hvíldu í friði Pétur okkar †
----------------------------------------------------------------------------------------
†Minning†
Nú ertu okkur fallinn frá,
elsku vinur minn.
Mín heitasta von og þrá er sú,
að þú hvílir í friði nú um sinn.
Nú öll himna hlið þér opnast,
og allir vegir eru þér færir.
Guðs englar allir lotningu hlotnast,
en er þú fórst, mörg hjörtu þú særðir.
Það var ekki meining þín,
Þú með brosi þínu ljós færðir.
Nú eftir situr minning þín, svo hlý um ókomna tíð.
-Sandra Maria..
--------------------------------------------------------------------
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum.
Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta.
Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur,
þótt látinn mig haldið....
En þegar þið hlægið og syndið með glöðum hug,
sál mín lyftist upp í mót til ljóssins.
Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur,
og ég, þótt látinn sé, tek þátt gleði ykkar yfir lífinu....
-------------------------------------------------------------------------
Leiðarlok
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið,
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið,
í huganum kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
Þín vinartryggð var traust og föst
og tengd því sanna og góða,
og djúpa hjartahlýju og ást
þú hafðir fram að bjóða.
Og hjá þér oft var heillastund,
við hryggð varst aldrei kenndur.
Þú komst með gleðigull í mund
og gafst á báðar hendur.
Svo vinur kæri vertu sæll,
nú vegir skilja að sinni.
Þín geta máttug verndarvöld
á vegferð nýrri þinni.
Með heitu, bljúgu þeli þér
ég þakka kynninguna,
um göfugan og góðan dreng
ég geymi minninguna.;*

