Jæja.. ég er bara stödd upp á Egilsstöðum. Hélt upp á áramótin mín hérna. Sem voru yndisleg, æðislegur matur og einka brenna og svona. En það var engin elsku Jóhannes minn í bónus að skjóta með mér flugeldum.. ;* En svona er þetta, vona að allir á Akureyri hafi átt æðisleg áramót. Ég verð næstu áramót að fagna þeim með ykkur:)
En árið 2006 er liðið.. og svo margt skemmtilegt var gert og því ári.
Smá yfirlit:
Í janúar hélt ég upp á nýja árið á Akureyri eins og venjan var. Þar sem að ég ætlaði í sjallann, og fór inn, svo þegar ég kom inn ákvað ég að fara HEIM að sofa. Talandi um ruulgaða manneskju. Svo byrjaði ég önn nr. 2 í ME. Spennt fyrir því eins og alltaf.... En í byrjun janúar.. fyrir ári síðan.. byrjaði ég með Jóa :)
Í febrúar .. já það hræðilegasta gerðist og það var þegar Silvía Nótt var kosin sem fulltrúi Íslands í Júróvision. Ég man ekkert hvað ég var að gera í febrúar en eflaust var það bara skólinn. Og eitthvað að reyna að undirbúa Hárið.
Í mars var Hárið frumsýnt. Og gífurlega öflugt Möndlpartý var haldið. Og já, bara skólinn og sýningar og meiri sýningar =) Stress og meira skemmtilegt. Sorrý haffi. En ég bara VARÐ!
Í apríl man ég ekki meir. Man JÚ að það var lokasýning í Hárinu. Tilfinningaþrungið móment. Og eftir lokasýninguna fórum við eða já meirihlutin af okkur á Vopnafjörð í sund. Lokapartýið var svo haldið skömmu seinna. Það var líka öflugt. Goth Goth og meira Goth.. ég fór í Páskafrí og vann eins og brjálæðingur í nammilandi heima á Múla. Mamma tilkynnti mér það að hún væri óólétt..
Í Maí. Kláraði ég fyrsta árið mitt í ME. Og náði öllu sem var mikill léttir. Ég varð fárveik og kastaði upp í heilaviku .. OFT á dag. Ég fór til Tríer í Þýskalandi og eyddi tveim "hræðislegum" vikum fannst mér þá. En núna þegar ég lít á þær, voru þær ekkert svo hræðilegar. Kynntist æðislegu fólki, þá er ég ekki að tala um Þjóðverjana. Það gerðist hræðilegur atburður og hann Pétur okkar var tekin frá okkur. Hvíldu í friði elsku ást;* Sakna ykkar :) Og sakna þín;*
Í Júní fluttist ég á Höfn. Jebb jebb jebb. Kemur á óvart, hvað mér þykir undurvænt um þennan stað þó svo að ég viti að flestir aðrir vilji þurka hann útaf landakortinu;) En ég byrjaði í Nammilandi eina ferðina enn. Og Jói kom jú, hverja einustu helgi í allt sumar í heimsókn til mín:) Ég titsaði Lunga djamm og fór í bío í staðinn. HAHA.
Í Júlí þá var vinna og meiri vinna. En svo kom Humarhátíðin mín. Og það gisti allur heimurinn heima hjá mér + það sem kom og heimsótti mig og Jóa um kvöldið, Hjalli, hrafnhildur, Halla vúúdúmen, anton? og fleiri og fleiri. Svo Guðbjörg, Gummi, Sigurveig, Lea og kærastinn hennar, Aldís, Hössi og svo framvegis... Takk fyrir æðislega helgi krakkar;* Og svo voru Franskir dagar á Fásk þarna rétt í lok mánaðarins:) Og þá gistum ég og Jói heima hjá Guggu. Það var æði.
Í ágúst. Fórum ég og Jói í tveggja vikna frí. Sem var frábært. Við byrjuðum mánuðin á að fara í Jarðböðin við mývatn. Og eyddum nokkrum klukkustundum þar oní. Svo fórum við dimmuborgarhringin og marg fleira. Þaðan fórum við að skoða Dettifoss. Og svo fórum við í Ásbyrgi. Sem að Jói hafði aldrei komið til áður. En ég farið í útilegu þar árlega síðan að ég man eftir mér. Tónleikar þar með Sigurrós sem voru einum of geðveikir. Þaðan var haldið til Akureyrar á versló djamm. Skítamórall í Sjallanum og fleira. ME byrjaði á ný. Eins og þið sjáið þá myndast Jói alltaf vel ;)
Í september gerði ég voða fátt. Ég byrjaði að vinna í Kaupfélaginu. Busaball á Seyðisfirði og eflaust eitthvað fleira sem ég er að gleyma. (Á engar myndir frá sept í tölvunni :S)
Í okt. varð litla gelgjan á heimilinu (Einar) 12. ára. Og daginn eftir eignaðist ég lítin bróður ;*;*;* Jakob Mána ;* ;* ;* Herra alheim með meiru. Sé ekki ljósið fyrir þessu barni ;*
Í nóvember var bara skólinn. Fór í sumarbústað með Mömmu og Pabba ásamt Freyju starfsfólki. Smá partý. Jói keppti í Morfís minnir mig. Óvissuball sem heppnaðist mjög vel. Stelpu"kvöld" hjá Elvu fyrir Óvissuball.
(Heiðdíís Fíífill ég veit að ég stal þessum myndum frá þéér.. =D )
Í Desember kláraði ég önnina, sátt með prófin. Hélt æðislegustu Jól sem ég hef átt heima á Höfn. Jói var hjá mér. Slappaði af í Jólafríi. Fór svo upp á Hérað og hélt áramótin þar:) ;*
Takk allir sem snertu líf mitt á einn eða annan hátt á árinu sem er liðið ;*
04. janúar 2007 klukkan 23:20
Sandra María Ásgeirsdóttir 7 athugasemdir
Jæja, þá er maður komin upp á héraðið aftur... Það er svona allt í lagi bara. Langar samt mest að vera heima hjá herra heimi. En síðan síðast þá hef ég ekkert gert af mér, bara legið eins og skata upp í sófa og drukkið jólaöl og borðað smákökur, horft á sjónvarpið. Ég og Jói keyrðum hingað upp eftir í gær, og það er kraftarverk að við lifðum það af. Á öxi t.d var vatnið úr ánni farið að flæða yfir veginn, þannig að Jói þurfti að stökkva út og vaða smá Til þess að tékka á því hvort að vegurinn væri nokkuð farin í sundur, en svo var ekki sem betur fer. Þannig við komumst hingað, og skelltum okkur heim til Pétur Á. þar var svona "hittingur". Fullt af fólki, sem fækkaði svo... Ég fór bara fyrst ein á rúntin afþví að ég nennti ekki inn strax, og það sannaðist fyrir mér að sumir eiga bara ekki að fá að keyra bíl. Þá er ég ekki að tala um mig. Þótt ótrúlegt sé. Svo hringdi Heiðdís Fífill í mig og kom með mér á rúntin, svo bættist Ásta Hlín í hópin, greinilegt að suumir voru undir áhrifum áfengis;) Enda nýbúnar í "ég hef aldrei" leiknum. Sem er leikur djöfulsins og ég mun aldrei fara í hann. Takk fyrir. En svo fórum við bara inn og ég hitti alla, Eyrúni meðal annars sem ég hef ekki séð í marga, marga, marga mánuði. Ég tel hana hafa verið drukknustu manneskju kvöldsins og kannski Sillu smá líka. En það var gaman að hitta alla, svo núna, dreifbýlisstyrkurinn komin, og ég ríkari en nokkru sinni fyrr. Djók. En næst eru það bara áramótin. Vonast eftir því að sjá sem flesta þar eiginlega bara alla!!!
Adios. ;*;*;*;*;*;*;*;*
30. desember 2006 klukkan 18:41
Sandra María Ásgeirsdóttir 3 athugasemdir
Jæja, Gleðileg Jól allir :) Það vantar bara snjóóó. Annars er frábært að vera loksins komin heim. Jólin eru búin að vera frábær, hingað til allavega. Fyrstu jólin hjá litla gaur, sem verður herra alheimur einhvern daginn. Yeb yeb. En ég fékk fullt af fínu dóti um jólin, og pabba og mömmu gjöf stendur pínu upp úr, en það var smá græju dót í bílinn minn, og pabbi og Jói eru að fikta í því núna. svo föt, takk Aldís ;* Þú veist nákvæmlega hvernig föt ég vil. Og tengdó, gáfu mér geðveikustu 66° peysu í heimi. Hefur alltaf langað í hana, aldrei týmt að kaupa hana, því að hún kostar meira, heldur en allar dísel gallabuxur og drasl í heiminum. Ullarjakka eins og ég bað um=D fullt af skarti eins og vanarlega og bækur, búáhöld, afþví að fólk heldur að ég sé farin að búa. En það eru böll útum allt í kvöld. Eitt á Víkinni og eitt í Sindrabæ Svo er á Eskifirði. Og svo veit ég ekki meir.
En allavega, hér er sætastabarn í heimi.
bleeess
26. desember 2006 klukkan 23:09
Sandra María Ásgeirsdóttir 2 athugasemdir
Lag dagsins: Winterwonderland/sleight ride - Dolly Parton
Jæja, maður er allur að skríða saman. Ógeðslega pest. Annars er ég bara búin að liggja upp í rúmi afþví að jú ég er ekki búin að geta staðið í lappirnar nema að Jói styðji mig. Mér leið eins og að ég væri orðin nííræð í gær. Gaman af því. Annars er ég ekki komin í jólaskap sem er ömurlegt. En þegar ég kem loksins heim,
óóvá hvað orðið "heim" hljómar fááranlega vel akkúra t núna.
Og vitiði hverju, ég stóð MIG að um daginn? Ég er enþá að ná mér, jú í Partýinu á Tærgesen, sem Dúkás og Tærgesen voru að halda ( Veit ekki hvernig targesen tæærgesen? Er skrifað) en þá var ég spurð að því hvaðan ég væri, og ég af öllum, sagði frá Hornafirði. Ég er varanlega skemmd fólk.
Samt er það eina sem ég þrái akkúrat núna er að komast heim í Jólaland = Höfn. Egilsstaðabúar kunna ekkert að skreyta! Eða eru frekar latir við það í ár finnst mér, eða eru allavega voðalega seinir eitthvað núna. En jáá, spurning um að mææta í vinnuna á morgun, ég bara verð, sama hversu slöpp ég verð. Ég er búin að missa af bókstaflega ALLRI jólavinnu, sem þýðir voða lítill peningur, eftir jól. Nema dreifbýlisstyrkur upp á 90. þús, og svo er Jói nátturulega líka að vinna.
En ég er búin að vera að skoða fullt af "jólapökkum" á úrvalúútsýýn. Og vá hvað ég ætla mér að fara til Rohdos eða Teneriefe. Ég vil sól og strönd og freknur ekki seinna en strax eftir jól, þótt að ég sætti mig svosem við það ekki fyrr en í páskafríinu.
En jæja, ætti maður ekki að reyna að borða eitthvað, ég er orðin 56 kílóó.. og áður en að ég varð veik, var ég eitthvað yfir sextíu kíílóin, erhm.
En allavega, sandra kveður í bili, með söknuð slash heimþrá í hjarta!!
:*
ég vil heim.
:*
blee
22. desember 2006 klukkan 00:04
Sandra María Ásgeirsdóttir 1 athugasemd
Hún Aldís mín er 18. ára í dag. Og þetta er fyrsta skiptið sem að ég hef ekki hitt hana Aldísi á 19. des. í sirka 12 ár. Sem er mjög skrítið. En hún er ein sú besta vinkona sem hægt er að óska sér. ÞÓTT að hún hafi farið burtu frá mér til Reykjavíkur, já gott fólk ég veit hvernig það er að láta dömpa sér, en þrátt fyrir þau sambandslit, höfum við alltaf haldið áfram að vera góðar vinkonur;)
En Aldís, vonandi ertu búin að eiga góðan dag, þrátt fyrir slor og slef í frystihúsinu ;*
Takk fyrir allt þarna þúú!!!
bæbæ :)
20. desember 2006 klukkan 05:34
Sandra María Ásgeirsdóttir 2 athugasemdir
Vöðvabólga, vöðvabólga og ekkert nema vöðvabólga. Aldrei haft svona mikla vöðvabólgu .. Brjálað veður í morgun. Kveiknaði í hlíf í bíílnum mínum.. een það er allt komið í lag núna. Ekkert smá mikill snjór. Mig langar mest í heimi að fara heim á Höfn. Pabbi búin að skreyta víst eitthvað hræðilega mikið. Kallinn eitthvað aðeins að missa sig í ár sagði mamma. En þannig á það líka að vera. Full, fullt, fullt af seríum og skrauti. Það er eitthvað búið að fara lítið fyrir því finnst mér hérna á Egs, allavega meðað við í fyrra. Annars er það bara vinnan á morgun og svona. Vonandi fæ ég að fara fyrr úr vinnunni á Laugardaginn =/ .. veit samt ekki með það.. Og vonandi vill Sigurveig vinna fyrir mig =/ een ég veit ekki heldur með það... En allavega þá er eitthvað matardæmi hjá Dúkás .. á Reyðarfirði.. targesen ? Kann ég að skrifa það, nei! oog ef ég losna ekki fyrr þá fáum við engan góðan mat En allavega, þá er litla systir jóa, Brynja, mesta krútt í heimi. Ég var nýfarin niður áðan, hún er líka lasin kom heim úr skólanum í dag, en allavega þá var ég nýbúin að kveikja á tölvunni. Og Brynja kom niður til mín og sagði að það væri mynd í sjónvarpinu sem væri örugglega fyrir mig. Þá var hún búin að setja Legally Blonde í tækið fyrir mig, hehhh =) Semsagt það er það eina sem ég hef gert í dag, sofið og horft á THE mynd.
Djók!
Ég gæfi hvað sem er akkúrat núna til þess að vera stödd á Nordica spa í Reykjavík, í heitum potti að láta nudda mig! Eða bara hafa Jóa hérna ? Hann er að vinna hjá Dúkás.. helvítis dónarnir vöktu mig um daginn. Læti, Læti...
OG aaaaaaafhverju tekur það heila eeeeeilífð fyrir þessa blessuðu enskukennara að koma með einkanirnar á Innu?
en eg hef aldrei neitt að segja á þessum bloggum, er farið að vera leiitt.. bleess..
14. desember 2006 klukkan 23:19
Sandra María Ásgeirsdóttir 5 athugasemdir
ÉG ER BÚIN Í PRÓFUM. ójá ójá ójá. Fór í Þýsku í dag, rústaði í munnleguprófi!! Samt ekki jafn mikið og í fyrra en samt gott. Og svo sópaði ég bara fötunum og drasli sem ég þarf að nota í jólafríinu út úr herberginu. Við þurfum ekki að tæma herbergið okkar. Afþví að við fáum það aftur eftir áramót. En ég fékk fjórar 7! Hvað í fjandanum er það? meeeeeðalmanneskja.. En hérna ég er mjög sátt við það að vera komin í "jólafrí" við tekur bara ógeðsleg vinna. Sem er alveg ágæt samt Öfuunda ég alltaf Jóa af vinnuni sinni. Mig laangar ekkert að vinna svona afgreiðslustarf.. eða eitthvert svona "stelpustarf".. mig langar svo mest að fara að vinna eitthvað annað. Spurning um að sækja um hjá dúúkás? haahahahahhaha. Fáir, eða bara engin sem fattar þennan brandara en það er í góðu. Jebb jebb, vakna í vinnu á morgun. Ég kalla það nú ekki jólafrí. Ég öfunda fólk sem er ekki að vinna þegar ég er að vinna en ekki þegar ég fæ útborgað..
En agglavega ætla ég í NUDDbaðkarið hérna heima hjá Jóa. Drepast úr vöðvabólgu.
Bless..
p.s. ALDÍS!! Hvernig er þetta með þig? Ertu komin heim eða ?
14. desember 2006 klukkan 01:34
Sandra María Ásgeirsdóttir Engin athugasemd
Jæja, einu sinni er allt fyrst... ég er búin í 6 af 8 prófum... búin vonandi að ná 7 af þeim, fallin í stærðfræði sem kom mér nú svo alsekkert á óvart. Ég fer bara til Jónínu eftir áramót og læt hana kenna mér, afþví að hinir stærðfræðikennararnir í þessum skóla eru einhverjir lúðar sem vita voða fátt. Og það er svona dáldið slæmt að heyra kennara segja beint út við mann, ég er svo búin að drulla á mig í kennslunni í þessum áfanga. Það er ekki gaman=/ En mééér finnst hlutfallið að ná 7 prófum en fall á einu ekkert svo slæmt =) Og það er geðveikt fáranlegt hvað ég er sátt við lífið og tilveruna eitthvað núna, og nýbúin að skoða inn á innu :P En svoona er ég kliikkuð. get ekkert lært þetta. 70% fall í áfanganum í fyrra, glæsilegt, stefnir allt í það núna að það verði HÆRRI prósentu tala núna, annaðhvort erum við svona ógeðslega heimsk eða kennslan er ekki í topp lagi. Eins og t.d hjá Jónínu rós, jáá ég veit ég lít á hana sem guuuð og sóóó ? =D En aaagglavegna, þá e ég bara búin að vera að læra, og í gær komst ég að því að ééég er greiiinilega ekki búin að soofa nógu mikið í þessari prófa viku og ástæðan fyrir því er að ég get ekki lært á dagin, en ég get lært á nóttuni, til svona 3-4 .. en í dag var ég sem betur fer ekki í prófi, sofnaði kl. 5 í gærdag svaf til hálf 11 um kvöldið.. sofnaði svo um 1 leitið aftur og svaf til hálf fjögur í dag!?! Þeetta eru maaaaaaaaaaargir klukkutímar. Böll í kvöld, seyðisfirði og reyðarfirði, ég er heima hjá Jóa, nennti ekki neinu. Fórum samt inn á Egilsstaði áðan, bara rúnta. Hittum noookkra. Mamma, Pabbi, einar og Jakob eitthvað að djamma í Rvk, Kaupa kápu oog fullt af fínu dóti handa mér =D vonandi =o En aannars eru að koma Jól? Sem er bara fáranlegt, og fólk hérna á egS? EKKERT BÚIÐ að skreyta? EKKI NEITT. Svo yyndislegt að koma heima á Höfn afþví að það er allt stúúúúúútfullt af skraaauti. Einsu sinni sló öllu út afþví að Hornfirðingar voru að nota svo miikið af svona drasli. Þá sérstaklega einn fáviti, samt ekkert svo mikill fáviti en sonur hans er það. Djóóók, ég þarf að fara að sofa (Hélt að ég myndi aldrei segja að það væri yndislegt að koma á höfn) En í þessu tilfelli já, pabbi búin að setja seríur úúúúút um allt og ég er að missa af öllu. Engin Akureyri um áramótin, hvernig lifi ég það af og ÁSTA HLÍN HVAR Í ANSKOTANUM ERTU ???? ertu að fela þig þú varst bara allt í einu farin ´ Ég er að pæla í því að skríða upp í rúm og kúra og soofna við fallegan gítarhljóm. Skemmtið ykkur varlega um helgina :) Bleess :*
10. desember 2006 klukkan 08:28
Sandra María Ásgeirsdóttir 2 athugasemdir
Hallóó, jæja, langt síðan síðast. Hérna það eru byrjuð próf og ég fór í mitt fyrsta í morgun, gekk vel.. enda íþróttapróf. En það er svosem ekki búið að gerast neitt mikið hérna, allavega hef ég ekkert verið alltof upptekin sko. Komst jú að því að skólastjórinn okkar er gengþroskaheftur og ég ætla ekkert að taka það aftur þótt að flestir segji að hann sé ágætur en sé bara svona miislindur, allavega hef ég aldrei á ævinni orðið fyrir svona ókurteisi og hreitingi og geðvonsku sem endaði með því að ég sagði "ertu að grínast" og labbaði út, svona félagslega hefta menn vill ég ekki hafa sem skólastjóra, geta þó að minnsta kosti komið almennilega fram við fólk!! Ég vil sjá Sigrúni Blöndal fronta þennan skóla!! Hver er ósammála mér? Hún er æði. Get varla beðið eftir því að fara í dönsku 303 hjá henni. En allavega ætla ég ekki að svekkja mig á því hvað skólinn minn er að fara yfir um í reglum og dóti. En ljósið í lífi mínu er (Jói) að það var verið að opna nýja centrum búð hérna á Egs.. svona rétt fyrir jólin. Jakob Máni minn er að verða 2 mánaða 6.des ;* Og Jói er að fara í dönskupróf ;*;*;* Mamma fór í litun og klippingu og brúúúúnkusprautun um daginn?? Hvaaað er það kona !!? :P =D Og það er engin vinna í prófavikunni, oog ég bara hef ekkert að segja, er þetta hægt? Ef ég gerði einhverntíman eitthvað sniðugt .. eins og jáá ég fór á Jólahlaðborð inn á skriðuklaustri í gær!! Það var geggjað, að fara svona fíínt en samt svo fríítt út að borða bara af því að Katrín og Sigurveig voru að syngja og buðu okkur og við fengum svona "private" rúm, Gunnar Gunnarsson var jú líka þarna. Og það var geggjaður matur, og ég að experííímeenta mikið af nýjum mat.. hrátt kjöt og dót. En jáá ég ætla núna að fara og looka Hi5inu mínu afþví að það eru ekkert nema pervertar frá Ukraínu eða Egyptalandi að adda mér inn og senda mér skilaboð. Foj.
En gangi öllum veel í prófunum. Ég held að ég bloggi ekkert fyrr en eftir próf.
Toj Toj fyrir alla sem skilja og bara bleess ;*
02. desember 2006 klukkan 18:53
Sandra María Ásgeirsdóttir 4 athugasemdir
Um mig: Eins og þið eflaust flest vitið þá heiti ég Sandra María. Er á 3 ári á málabraut í Menntaskólanum á Egilsstöðum og er það nú alveg ágætt þó svo að hugurinn leiti oft út fyrir landsteinana. En það er á dagskránni fyrir haustið að leggja land undir fót í Danaveldi. Uldum - Hojskole. Ég er frá Álftafirði, en foreldrar mínir fluttust svo á Hornafjörð þegar ég var 16 ára. Ég á tvo yngri bræður, þá Einar Ásgeir (14) og Jakob Mána (1)
Auglýsing
Klukkan
..
Endilega kvittið fyrir ykkur áður en þið yfirgefið síðuna. Almenn kurteisi gott fólk, almenn kurteisi =)