30júlí

Franskir ? Vonum framar !

Já, ég get ekki sagt annað en að Franskir hafi verið .. geðveikir.
Komu mér mjög á óvart. Þótt.. að Föstudagskvöldið.. hafi verið svona jáá. Frekar snemma heim. Ekki var ég þó vandamálið ! Takið eftir því ;) En við gistum hjá henni Guðbjörgu. Sama sama teymi og var heima hjá mér .. een já.. ég og Jói stungum af í bío á Laugardagskvöldið. Og svo var haldið á ball. Sem var tjaa, troðið ? Fullt fólk og svitafýla ? En samt svo gaman ;) Maður gat varla dansað. Held að það hafi verið allavega rúmlega 400 manns, inn í ekki stærra húsnæði heldur en Skrúði. En Skrúður klikkar ekki. Það er nú bara svoleiðis. En þetta verður nú stutt færsla, ég eitthvað heima á Ketilsstöðum. Og ég og Jói eitthvað að búrast og fara að horfa á dót..

bleeess !!
30. júlí 2006 klukkan 19:16
Sandra María Ásgeirsdóttir
Engin athugasemd
28júlí

..

ÉG ER FARIN Í FRÍÍÍÍÍ !!!!!!!!!!!!!!!!


Núna er ég farin í mitt langþráða tveggja vikna frí. Fáskrúðsfjörður um helgina. Og eitthvað verður nú sumblað .. !

..BLeeess !

28. júlí 2006 klukkan 20:18
Sandra María Ásgeirsdóttir
3 athugasemdir
27júlí

MÆLI MEÐ..!!

Jáá.. ef þig eigið erfiðan dag.. og eru ekki alveg að fíla tilveruna..þá tékkiði á þessu. Þetta´fær ykkur pottþétt til þess að brosa.. en mig til þess að skammast mín smá.. jáá þessi ár voru frábær.. mæli sérstaklega með.. eldri bloggum.. þetta bara..jáá .. fær mig til þess að hlæja.


http://www.folk.is/freakyeyes

27. júlí 2006 klukkan 00:43
Sandra María Ásgeirsdóttir
Engin athugasemd
27júlí

Éég er hér.

Jáá, núna er verið að spyrja mig mjög kurteisilega að því hvort að Höfn sé skítasker. Tjaa, Ísland er skítasker, samt besta land í heimi ?

Jáá. Lítið að ske, ég er bara að bíða eftir að komast héðan. Svo að ég geti farið að blogga um eitthvað. Því alltaf skeður eitthvað, þegar ég er ekki hér á Höfn. T.d um helgina. Franskir daga :D Ég og Jói tjöldum í garðinum hennar Guggu.
Ég væntist til þess að sjá kunnuleg andlit þar.
Ég var nú að tala við Jóa í síman áðan, hann sofnaði nú, þannig að ég leyfi honum að sofa;)  En éég er að elda makkarónu grauuut !
Jéésús.. það voru nú einu sinni tímar, sem ég hafði eitthvað til þess að blogga um. En þeir tímar eru greinilega eitthvað í pásu, því ég var jú að segja að ég væri að elda makkarónu graut, og hvaða máli skiptir það eiginilega ?

FM .. sora útvarp .. nema þegar Kristín var tekin niður á stöð, vegna þess að láta einhvern gaur ..sem vildi vinna miða á Þjóðhátíð, labba niður í bæ, á hlébarða g-streng. Það er núú kúl. En hann hét Bjarki, og fannst það ekkert mál, því að hann ætti nú þrjá g-strengi.. og stelpu g-strengir væru nú óþægilegir, en G-strengurinn fyrir stráka sem hann keypti á Spáni, er víst mjög þægilegur og hann gengur oft í honum.
Já, hvað er að koma fyrir karlmenn ?
Vil ekki hugsa þetta lengra.

En jáá.. ég er að pæla í að fara að fá mér að borða...
 
Fásk.. um helgina.. jáá ?!?!

blee ;*
27. júlí 2006 klukkan 00:41
Sandra María Ásgeirsdóttir
Engin athugasemd
24júlí

Núðlur og appelsínusafi ..

Jæja, þá er maður komin .. aftur á Höfn. Hér er engin sól, frekar en vanarlega. Steikjandi hiti upp á héraði í dag. Lagði af stað frá Egs kl. 2 með rútu!!!!!! Var að koma heim og kl. er orðin 18:17 ... jáá þetta er svona svipað og þegar pabbi keyrir til Reykjavíkur. Álíka langur tími. En ljúf vika framundan, eða svona, klára bara að vinna, og svo loka verksmiðjunni og fara í fríííi!!! Svo er planið að fara á Franska daga næstu helgi. Styrmir verður á svæðinnu að leita sér að gellu ;)
Hann bara eitthvað að Kárahnjúkast kallinn.

En í gær fór ég á þetta leikrit. Sem var spes, en samt svo skemmtilegt. Bara gaman að fara á svona úti skógi .. allt öðruvísi en að sjá svona t.d leikhúsi, eða valaskjálf eða eitthvað svoleiðis. Jói stóð sig bara með prýði, þótt að hann hafi byrjað leikritið á því að káfa á mótleikonu sinni, en það er nú einu sinni í handritinu, þannig að ég hef ekki rétt á því að mótmæla;)

En ..versló, alveg .. að koma.. bara smá spölur eftir. Og Dk ferð.
Hlakkar einum of mikið til.

hahahah, ég ditsaði L.ung.A djamm..hefði samt viljað sjá Jeff Húúúúúúú ..og Ampop ... spila á tónleiknum.. en nenntum bara ekki að hlusta á fullt af dóti og bíða eftir þeim .. þannig fórum niður á firði. Sáum eina góða mynd. Vin Diesel .. heitastur eða hvað ?

Eeen ætla að fara a klára núðlurnar mínar áður en þær verða kaaaldar !!

bleess

24. júlí 2006 klukkan 23:21
Sandra María Ásgeirsdóttir
6 athugasemdir
23júlí

Jáá.. heeeiitt .. hvað segja fyllibytturnar þá ?

Hallóó, já ég veit. Ég fór ekki á L.ung.A og fólk, hættið að væla. :P
Ég nennti bara engan vegin að fara og þurfa að hlusta á blindfullt fólk sem var að öllum líkindum ælandi útum allt. Ónei. Veit ekki afhverju skoðun mín á öllu svoleiðis er að breytast. En það er hún nú samt. En ég frétti að það hefði verið feikna stuð, vona bara að allir hafi skemmt sér vel. Þrátt fyrir hatur mitt á drykkjuskap akkúrat í augnablikinu, Þá breytist það trúlega á morgun og svo verður maður blek á Frönskum Dögum.. ég meina, fer bara eftir skapi. Já Franskir .. þá er ég komin í 14 daga frí. Rúst lúðar.
En ég og Jói ætluðum að taka rúnt niður á Seyð í gær. Og svo bara neii, ekki sjéns. Við erum löt. Og nenntum ekki. Meirað segja Aldís er heima hjá sér í Álftafirði, nokkuð stolt af stelpunni ;) En annars var víst voða gaman hjá fólki í gær :) Sem er gott mál. Var að tala við hana Sigurveigu í símann, hún skemmti sér voða vel. Þurfti að segja mér frá mörgu.. Hún Vonandi fer með mér á Leikritið í kvöld. Sem Jói og fullt af fólki er að leika í. Ég nenni svona varla að fara ein.
Jáá, gærkvöldið var algjör draumur, enda er ég upp á Ketilsstöðum. Fórum í fljótið að synda.. íískalt, en samt svo mikil sól. Ég lá hérna bak við hús áðan í 28°c hita. Ljúúft. Varla hefur sést til sólar á þessu anskotans pleisi sem ég bý á í allt sumar. Og erum ég og Mamma að verða geðveikar. Henni langar upp á hérað, en sem betur fer ég aftur hingað eftir.. tja viku tæpa ? Aaaaaaaa ...

En ég var að komast að því.. að sumt fólk á ekki svo mikið skilið að lifa ? Eða allavega minna en sumir. Hugsa að ég keyri yfir einn bíl þarna á Höfn á Ekóóónlæææninum hans pabba einn daginn. Hann færi létt með það, enda er viðkomandi bíll algjör drulsa, þótt að driverinn haldi að hann sé á algjöööru tryllitæki. En sorglegt. Fyrir viðkomandi þar að segja.

Jáá, ég fer niður á Höfn á morgun, svo bara halda út í viku. Ég er búin að halda þetta út í allt sumar þannig að ég hlýýt að meika þetta í eina viku ;)
Svo foookklings Danmörk í Ágúst, og á meðan við erum úti þá byrjar ME og svona. ..Jáá. Það er of heitt. Hef ekki fundið fyrir svona hita í allt sumar.

En allavega, finnst mér það sniðugasta í stöðunni, að leggjast upp í rúm og láta lífið.

Bless.
23. júlí 2006 klukkan 22:17
Sandra María Ásgeirsdóttir
5 athugasemdir
21júlí

Verð fyrir aðkasti..

Jæja.. núna er að koma helgi. Fullt af dóti þá. Fólk að bögga mann um að koma á L.ung.A .. tjáá.
Er bara að einmannast. Er að tala við Hrafnhildi á msn bara. Erum að tala um Þýskaland, Trier ferð, og ljótu þjóðverjana. Og að vita það að þau koma í september til okkar. Lætur mig fá hroll. Ég finn eitthvað útur þessu. Læt þau sofa úti.. foooj..En allavega er ég að fara upp á Hérað á morgun. Og fokk já mér hlakkar til. Sofna í RÚMINU mínu á Ketilsstöðum. Og svo .. 14 daga frí, alveg í uppsiglingu.. eeen ég eitthvað að horfa á Rock Star í gær, eitthvað svo stolt. Allt voða voða gaman þarna úti. Magni að standa sig, alveg. Og þegar hann vinnur og slær í gegn, verður heimsfrægur, ætla ég að selja Nike skóna mína á Ebay, sem hann Magni var að krota á!!! Meina Bandaríkjamenn eru svo heimskir að ég hlýt að geta fengið einhvern pening. En allavega.. þáá ætla ég að skríða undir sæng. Og vonandi get ég komið með eitthvað skemmtilegt blogg eftir helgina. Og hef vonandi frá einhverju að segja. En þangað til veriði stillt !



éég kveeð
21. júlí 2006 klukkan 02:52
Sandra María Ásgeirsdóttir
3 athugasemdir
20júlí

Sturta ?

Jáá, kominn enn einu sinni hérna fyrir framan tölvuna og er búin að velta því fyrir mér síðan klukkan fimm í dag hvort að ég nenni í sturtu. Og ég hef ekki enþá komist að niðurstöðu. Trúlega kemst ég að henni í kvöld, vonandi allavega.
En allavega þá legg ég af stað upp á héraðið mitt um sjö leitið á Föstudaginn.
Þaaað verður nú gaman. Jói að leika í Draumur á Jónsmessunótt .. ég fer á það á Sunnudaginn. Jáá. Æj það er ekkert sniðugt að vera að blogga og hafa ekkert að segja. Þá finnst lesendum ekkert gaman að lesa. Ekki eins og það sé einhverntíman gaman að lesa bloggin mín, en ég meina.
Ég er komin með svo upp í kok af FM. Þetta er bara versta útvarpsstöð á landinu. Að mínu mati, eða kannski ekki sú versta, fín lög og allt það, en kommon þegar ég er búin að heyra sama lagið 5 sinnum á dag í tvo mánuði þá er þetta nú orðið ágætt. Þannig í dag skipti ég yfir á Rás 2. Og líf mitt tók aftur lit.
Sit bara hérna og er að spjalla við hana Aldísi mína. Skipuleggja smá hitting á Frönskum Dögum. Ég vona það. Á samt eftir að bera það undir Jóa :P
En jáá, sturta segiði ? Held að fólkið hérna sé að verða búið með heita vatnið.

En ég sá dáldið sniðugt á síðunni hennar Leu, og ég er búin að gefa mér það leyfi til að birta þessar myndir :) Humarhátið.. Sigurveig, tókst þú nú ekki myndir :O Eða er ég að ruuugla.


sigurveig að gera sig fína fyrir djamm..!


Jáá, Jói í ullarpeysunni hennar Sigurveigar, honum finnst nú gaman að klæða sig í kvennmannsföt. Gummi, sem betur fer gerir það nú ekki mikið .. vona ég ?

Þ
HOPPA !!


Gummi, svona líka hress :D Og Hjálmar !!


Gugga, ég og Sigurveig, að husga um eitthvað mjög áriðandi og mikilvægt.


Jááá.. =) Græna sullið hennar Leu :D
20. júlí 2006 klukkan 02:32
Sandra María Ásgeirsdóttir
7 athugasemdir
18júlí

Góðaa kvöldið.. hááálft áár..

Jæja.. núna er komin 18. Júli. Þetta er nú merkisdagur. Allavega í mínum augum :)
Ég og Jói eigum smá 6. mánaða afmæli. Hálft ár. Þvílíkt afrek. Mitt helsta afrek. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki kynnst þessum gullmola. Vildi bara þakka þér fyrir að vera til ;*
Því að þú ert ástæðan fyrir því að ég lifi;*
Þúsund þakkir fyrir allt ást ;***

Love


Þetta eru Styrmir og Jói. Fyrir akkúrat hálfu ári í dag, þetta er rétt fyrir það að Styrmir bað Jóa um að koma út á gang. Og spjallaði aðeins við hann. Og skoo Styrmir :D Það virkaði svona líka vel ;)



Æji þessi mynd. Ég elska hana. Tekin sama kvöld og hin. Styrmir stofnaði til hópmyndatöku. Man að Jói settist fyrst á endan á rúminu. Og Styrmir sagði honum að fara undir sæng til mín því hann ætlaði að taka myndir.. Og svo var hann að biðja alla um að þjappa sér. Æææji þetta var svo augljóst, Anna að deyja úr hláátri. Og ég missti andlitið .. og passaði að næðist ekki á filmu.
Takk Aldís og Styrmir, þið stóðuð ykkur eins og hetjur ;)
Og svo Jói auðvitað mesta hetjan seinna um kvöldið :D:D


...En annars, þá er Ég, á leiðinni á héraðið um helgina. Það er núú gott fyrir mig og sálina, því Hornafjörður er nú ekki beint vistvænn bær, eða já svona..

Bleeehheeess !!

18. júlí 2006 klukkan 23:53
Sandra María Ásgeirsdóttir
3 athugasemdir
17júlí

ááhugavert .. ?


visited 8 countries (3%)

Ég heef heimsótt 3% af öllum heiminum. En gaaaman...
Annars ætlaði ég ekkert að blogga. Var bara að vinna í dag, og komst að því að það vinna eintómir hálfvitar hjá þessu fyrirtæki fyrir sunnan..
Alltaf jafn gaman að komast af einhverju svona líka skemmtilegu..

bleee

17. júlí 2006 klukkan 22:56
Sandra María Ásgeirsdóttir
5 athugasemdir

Prófíll

  • Nafn: Sandra María Ásgeirsdóttir
  • Netfang: sandra_mall89@hotmail.com
  • Staður: Hornafjörður/Egilsstaðir
  • Atvinna: Fátækur námsmaður !!
  • Hjúskaparstaða: Svoo frátekin.
  • Um mig: Eins og þið eflaust flest vitið þá heiti ég Sandra María. Er á 3 ári á málabraut í Menntaskólanum á Egilsstöðum og er það nú alveg ágætt þó svo að hugurinn leiti oft út fyrir landsteinana. En það er á dagskránni fyrir haustið að leggja land undir fót í Danaveldi. Uldum - Hojskole. Ég er frá Álftafirði, en foreldrar mínir fluttust svo á Hornafjörð þegar ég var 16 ára. Ég á tvo yngri bræður, þá Einar Ásgeir (14) og Jakob Mána (1)

Auglýsing

Klukkan

..

Endilega kvittið fyrir ykkur áður en þið yfirgefið síðuna. Almenn kurteisi gott fólk, almenn kurteisi =)

Könnun

Gummi kallinn í Byrginu ?

Leit